Ósmekklegt en fyndið

Þetta er frekar fyndið. allt er nú reynt fyrir smá pening.

Það er örugglega komin kreppa innan rimlana. Þeir verða að redda sér greyin eftir að eftirspurn eftir númeraplötum snarminkaðBanditi


mbl.is Auglýsti andlát samfanga síns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru mótmælendur ekki á röngum stað?

Væri ekki réttara að mómæla þeim sem ollu þessari fjármálarugli.

þ.e.a.s svokölluðu útrásarvíkingum?

mæta bara heim til þeirra og garga reiðinni þar.

það eru þeir sem eru búnir að stela og svíkja ekki stjórnin,hún er að reyna að vinna vinnuna sína held  Ég held að það sé ekki rétta leiðin að reyna að trufla ríkisstjórnafund, það lagar ekkert.

það ætti frekar að draga þessa víkinga frekar út úr húsum sínum og láta þá finna fyrir ábyrgðinni sem þeir fengu jú ofurlaun fyrir...


mbl.is Mótmælendur eiga ekki að bíta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afhverju er ekkert nafn?

Fjölmiðlar voru ekki lengi að birta nafn sr. Gunnars og afhverju birta þeir ekki nafn Háskolakennaranns?
mbl.is Grunaður um kynferðisbrot gagnvart 5 börnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

??? samstarf

Ættli lyf og heilbrigisþjónusta ódýr eins og í færeyjum

70% lægra lyfjaverð og þarf ekki að borga þegar maður fer til læknis? LoL


mbl.is Skoða samstarf Íslands og Færeyja á heilbrigðissviði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

STÓRÚTSALA Á DÓMUM Í HÆSTARÉTTI.

Það virðist sem ofbeldi sé ekkert mál í dag. Allavega eru dómarar ekkert að dæma þessa menn neitt rosalega hart.

Þessi var með 10 mánaða skilorð á sér og fær svo 12 mánuði núna, 10+12=14 er ekki eitthvað bogið við þetta dæmi eða???? eða er stórútsala hjá hæstarétti? eða er eitthvað þema í gangi hjá dómurum t.d gælum við glæpamenn þessa vikuna.


mbl.is 14 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás og brot á skilorði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sex mánaða skilorðsbundinn dómur fyrir ofbeldi gagnvart lögreglu

Hvaða djók er þessi dómur? þessi maður fær bara klapp á bakið og sagt að gera þetta ekki aftur.

Er þetta málið? Að maður sem er á skilorði lemur 4 lögreglumenn fái eingöngu 6 mánaða skilorðsbundinn dóm.

Ef maður ekki á skilorði lemur lögreglumenn fær hann þá engan dóm?

Þetta er kjánalegur dómur og ekkert skrítið að mjög margir lögreglumenn hætti störfum ef öryggi þeirra ekki metið meira.

 


mbl.is Sex mánaða skilorðsbundinn dómur fyrir ofbeldi gagnvart lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forstjóri Alcoa hvetur til aðgerða gegn loftslagsbreytingum

Hvað er þessi álhaus að bulla? Ég held að fyrsta skrefið sé að draga úr álframleiðslu,allavega hér á landi.Það væri góð byrjun hjá honum, svona áður enn við Íslendingar þurfum að fara að kaupa vatn á flöskum..


mbl.is Forstjóri Alcoa hvetur til aðgerða gegn loftslagsbreytingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fór með geimveru í bíó

Fórum í bíó 2 vinir í gær sem er ekki  frásögu færandi nema að vinur minn er lögblindur og gengur um með hvítan staf. Það er engu líkara en ég hafi farið með geimveru í Háskólabíó,fólk missti útúr sér augun þegar kappinn reif upp hvíta stafinn og gekk út þegar myndin var búin.Það var frekar fyndið að sjá viðbrögð hjá fólki við stafnum,það kippti við börnum eins og vinur minn væri eitraður þegar við löbbuðum framhjá frekar skondiðSmile Eftir bíó kíktum við á vin okkar í vaðnes og ég rataði ekkert og þá varð blindi vinur minn að vísa mér vegin sem er líka svolítið skondið. svarta myrkri sagði hann mér hvert ætti að keyra og hvar ætti að beygja.takk fyrir daginn Einar.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband