Fór með geimveru í bíó

Fórum í bíó 2 vinir í gær sem er ekki  frásögu færandi nema að vinur minn er lögblindur og gengur um með hvítan staf. Það er engu líkara en ég hafi farið með geimveru í Háskólabíó,fólk missti útúr sér augun þegar kappinn reif upp hvíta stafinn og gekk út þegar myndin var búin.Það var frekar fyndið að sjá viðbrögð hjá fólki við stafnum,það kippti við börnum eins og vinur minn væri eitraður þegar við löbbuðum framhjá frekar skondiðSmile Eftir bíó kíktum við á vin okkar í vaðnes og ég rataði ekkert og þá varð blindi vinur minn að vísa mér vegin sem er líka svolítið skondið. svarta myrkri sagði hann mér hvert ætti að keyra og hvar ætti að beygja.takk fyrir daginn Einar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar  Lee

HAHAHA....og ég sem hélt að fyrir utan það að vera lögblindur, væri ég líklega líka ósýnilegur.  Takk fyrir daginn sömuleiðis vinur.

Einar Lee, 24.9.2007 kl. 19:09

2 Smámynd: Óttarr Makuch

Þú hefðir nú átt að leyfa Einari að setjast undir stýri og sjá svipinn á fólkinu þá.

Óttarr Makuch, 24.9.2007 kl. 22:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband